2.1.2009 | 18:59
Hefur Samfylkingin nægilegan þroska til samstarfs í ríkisstjórn?
Nú hefur formaður Samfylkingarinnar stigið fram og lýst því að kjósa eigi til Alþingis í vor. Ekki eru nema nokkrir dagar frá því að hún setti ofaní við tvo ráðherra sína sem komu með sambærilegar hugmyndir. Þessar hugmyndir koma fram í kjölfar að því að virðist óróa innan Samfylkingarinnar.
Þessi órói segja innan flokksmenn sem lýðræði en heitir á mannamáli órói. Þessi sami órói hefur einkennt vinstri menn á Íslandi í um 80 ár, eða frá þeim tíma að Kommúnistar klufu sig út úr Alþýðflokknum. Reyndar má segja að það hafi verið gæfa íslensks samfélags hversu sundurþykkir vinstri menn hafa verið á Íslandi.
Samfylkingarforystan virðist vera að fara á límingunum vegna skoðanakannana velgengni Vinstri grænna. Forystan er orðin sundurleit og sjálfri sér ósamkvæm. Ekki þarf lengi að lesa bloggsíður Össurar staðgengils utanríkisráðherra til að sjá að þarna er ekki samhent forysta á ferðinni.
Því miður hefur þetta sundurlindi áhrif á landsstjórnina og kjör almennings. Þetta innanhússvandamál er því ekkert vandamál Samfylkingarinnar og varpar þeirri spurningu fram hvort flokkurinn sé tækur í stjórn!
Alþingiskosningar samhliða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Jónas Egils.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það er líka spurning hvort ráðherrar Samfylkingarinnar hafi nægilegan þroska til að taka sér frí frá pólitík og bjóða sig ekki fram í komandi kosningum. Það á reyndar við fólk í Sjálfstæðis- og Framsóknarflokknum líka.
Haraldur Hansson, 2.1.2009 kl. 19:21
Sko, hérna, öööö...
...heyrðu, sleppum þessu bara, ég þarf að fara að gubba.
Helgi Hrafn Gunnarsson (IP-tala skráð) 2.1.2009 kl. 21:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.