Krafa um gegnsæi álitsgjafa RUV

Nú þegar kosningar nálgast er leitað í ríkari mæli en áður til „sérfræðinga“ af ýmsu tagi. Fréttastofu RUV er gjarnt að leita upp í HÍ til sérfræðinga um „fagleg“ prófessora og annarra um álit þeirra á stjórnmála umræðunni. Álitamál er hvort allir þeir stjórnmálafræðingar séu jafn faglegir og titlar þeirra gefa vísbendingu um.

Sporgöngumaður og guðfaðir margra „stjórnmálafræðinga“ hér á landi heitir Ólafur Ragnar Grímsson. Aldrei hefur hann beinlínis verið hlutlaus í sinni afstöðu. Það er viðurkennd staðreynd. Annar stjórnmálafræðingur þekktur fyrir sínar pólitísku skoðanir er Hannes H. Gissurarson, enda varla leitað til hans um pólitísk mál sem hlutlauss aðila.

Baldur Þórhallsson er nú kominn í framboð f. Samfylkinguna hefur oft sinnis komið fram sem „faglegur“ álitsgjafi. Gunnar Helgi Kristinsson er annar stjórnmálafræðingur sem RUV t.d. leitar til, en hann er þekktur sem stuðningsmaður Samfylkingarinnar. Gylfi Magnússon núverandi viðskiptaráðherra var varla svo „faglegur“ HÍ prófessor, að hann varð ómissandi í ríkisstjórn til hans var mikið leitað t.d. í kjölfar bankakreppunnar. Þorvaldur Gyflason hefur verið ómissandi þegar þörf er á krassandi yfirlýsingum. Eins hefur verið hægt að treysta á „rétt“ viðhorf dr. Stefáns Ólafssonar félagsfræðiprófessors! 

Almenningur á heimtingu á hlutlausum álitsgjöfum - ekki áróðursmönnum. Slíkt væri í samræmi við kröfur sem gerðar eru um fagleg sjónarmið embættismanna og starfsmanna ríkisins. Til þess var beinlínis ætlast að Þjóðviljinn sálugi væri með áróður og gengi erinda Alþýðubandalagsins á sínum tíma og þar áður Kommúnistaflokk Íslands og styddi stefnu Stalíns þar á undan. En gera verður meiri kröfur til fréttastofu RUV!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jónas Egils.

Höfundur

Jónas Egilsson
Jónas Egilsson
Höfundur er áhugamaður um mál líðandi stundar og er stjórnmálafræðingur að mennt.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Mávur að nærast á hval.
  • picture 2 861432.png
  • Ráðherra í fríi
  • Leiðarljós vinstri manna í efnahagsmálum?
  • Mme. Joly - Nýjasta svindlið?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 34235

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband