Völdin tekin af form. Samfylkingarinnar?

Ef marka má fréttir í dag og undanfarna daga, má leiða að því nokkuð sterkar líkur að búið sé að taka völdin af Ingibjörgu Sólrúnu formanni Samfylkingarinnar. Hún neitar því staðfastlega að rætt hafi verið myndum minnihlutastjórnar VG og Samfylkingarinnar.

Steingrímur neitar því að formlegar viðræður hafi átt sér stað, en  ekki óformlegum viðræðum. 

Framsókn hefur lýst yfir skilyrðislausum stuðningi, að því að virðist, við áðurnefna minnihlutastjórn. Slíkt er því sem næst fordæmalaust að nokkur flokkur hafi gefið út óútfyllta ávísun til annarra flokka um stuðning, nema eitthvað annað hangi á spítunni. 

Útspil hennar um Jóhönnu Sig. sem forsætisráðherraefni er annað hvort viðurkenning á orðnum hlut, eða tilraun til að mynda geil í hóp „uppreisnarafla“ Samfylkingarinnar. Í leiðinni þetta notað sem ástæða til raunverulegra stjórnarslita. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

21. janúar 2009
Yfirlýsing frá þingflokki framsóknarmanna um minnihlutastjórn
YFIRLÝSING

Á fundi þingflokks framsóknarmanna nú síðdegis veitti þingflokkurinn formanni Framsóknarflokksins, Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, fullt umboð til að bjóða forsvarsmönnum Samfylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs að mynda minnihlutaríkisstjórn flokkanna tveggja sem varin yrði vantrausti af hálfu Framsóknarflokksins á meðan alþingiskosningar verða undirbúnar.
Þetta er háð því að kosningar fari fram eigi seinna en 25. apríl næstkomandi og að strax verði ráðist í aðgerðir til að koma til móts við skuldsett heimili í landinu og bæta rekstrarskilyrði íslensks atvinnulífs. Í því felist meðal annars að mörkuð verði stefna í gjaldmiðilsmálum þjóðarinnar. Jafnframt verði komið á stjórnlagaþingi sem semji nýja stjórnarskrá íslenska lýðveldisins.
 
F.h. þingflokks framsóknarmanna
 
Siv Friðleifsdóttir,
formaður þingflokks framsóknarmanna

Framsóknarmaður (IP-tala skráð) 26.1.2009 kl. 21:40

2 Smámynd: Jónas Egilsson

Hversu ítarleg eru þessi skilyrði?

Eitt alveg ákv., en það eru kosningar eigi síðar en 25. apríl.

Annað, svolítið opið, það er stjórnlagaþing komi saman. Hvernig það verði skipað, hverju á að breyta í stjórnarskrá, er stór spurning.

Önnur mál?

Jónas Egilsson, 26.1.2009 kl. 22:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jónas Egils.

Höfundur

Jónas Egilsson
Jónas Egilsson
Höfundur er áhugamaður um mál líðandi stundar og er stjórnmálafræðingur að mennt.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Mávur að nærast á hval.
  • picture 2 861432.png
  • Ráðherra í fríi
  • Leiðarljós vinstri manna í efnahagsmálum?
  • Mme. Joly - Nýjasta svindlið?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 34258

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband