28.6.2009 | 22:11
2+1=0
Bílalest náði í kvöld, 28. júní, frá Geithálsi austur að Kambabrún með mismuandi hléum og hraða. Hraði ökutækja var á tímabili, efst í Skíðaskálbrekkunni því sem næst enginn.
Ástandið var sérlega slæmt í við upphaf og enda 2+1 kaflan í Svínahrauni, þar sem ökumenn voru beggja megin að reyna að nýta sér þessa 2+1 leið til að flýta fyrir sér. Slíkt orsakaði tappa og öll umferð tafðist þess vegna og var kyrrstæð á köflum. Það sama gerðist á háheiðinni og ekki var hraðinn mikill framhjá Litlu-kaffistofunni.
Ástandið á Suðurlandsvegi í kvöld sýnir tvennt. Að vegurinn ber ekki álagspunkta og langt þar frá það sem um 30 km biðröð myndaðist inn í borgina. Svo löng, að stórborgir Bandaríkjanna væru fullsæmdar af. Einnig að þessi svonefnda 2+1 leið er e.t.v. ekki sú draumalausn sem ýmsir hafa bundið vonir við. Þver á móti, hafði hún gagnstæð áhrif.
Enn mikil umferð til borgarinnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Jónas Egils.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það þarf nú ekki 2+1 leiðina til, eins og kom í ljós á föstudag. Hringtorgið í Hveragerði olli biðröð frá Hveragerði og inn í Ártún.
Þetta sýnir bara að „snilld“ íslendinga á sér engin takmörk í hönnun samgöngumannvirkja.
Eða var það heimska ? Minnið svíkur mig...
Þór Sigurðsson, 29.6.2009 kl. 00:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.