Hvað er RUV að hugsa? Sófaspjall eða sagan?

Á meðan RUV var í "rólegu stofunni" fór fram úrslitahlaup í 100 m hlaupi á Ólympiuleikunum.
Fyrirfram var vitað að þetta gæti orðið sögulegt hlaup, Ólympíumet- og heimsmet jafnvel í hættu.
Hvað gerðist? Jú, RUV var í spjallgírnum á meðan heimsmet var sett í 100 m hlaupi á Ólympíuleikunum. Reyndar var hlaupið sýnt korteri síðar - eftir að spjallinu var lokið!
Var ekki hægt að bíða aðeins með spjallið og sýna Íslendingum sögulegan atburð í beinni útsendingu?
Hver er forgangsröðun RUV?
Þarna féllu þeir á prófinu frá RUV - því miður!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ágúst Ásgeirsson

Hef samúð með þér Jónas minn, og öðrum íslenskum íþróttaunnendum!

Ólíkt hafast menn að hér í Frakklandi, sjónvarpsstöðvarnar búnar að keyra á því frá í gær klukkan hvað úrslitahlaupið væri í dag svo það var ekki hægt að missa af því. Ríkisstöðin France-2 hafði byggt upp spennu með því að spá heimsmeti í allan dag sem rættist! Og það þrátt fyrir að langi sláninn Bolt hætti að hlaupa 25-30 metrum frá marki.

Annað eins hef ég aldrei séð - nema ef væri Ben Johnson á HM í Róm 1987 en þar sat ég í stúkunni upp af endamarkinu.

Ágúst Ásgeirsson, 16.8.2008 kl. 15:40

2 Smámynd: Jónas Egilsson

Málið er að þetta er BEZTA 100 m hlaup sögunnar. Það var vel vitað fyrirfram enda þurfti 10,01 til að komast í úrslit!

Það sem bjargar nokkrum okkar er Eurosport var með beina útsendingu

Það á vera búið að margtesta þessa hlaupara og skima, svo lítil hætta er á að þeir verði Ben Johnsson #2! Þessi gaur, Usain Bolt, var heimsmeistari í 200 m hlaupi 18 ára og yngri 16 ára gamall. Svo á hann smásjens í að bæta metið í 200 m ef hann hleypur í gegn!

Jónas Egilsson, 16.8.2008 kl. 20:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jónas Egils.

Höfundur

Jónas Egilsson
Jónas Egilsson
Höfundur er áhugamaður um mál líðandi stundar og er stjórnmálafræðingur að mennt.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Mávur að nærast á hval.
  • picture 2 861432.png
  • Ráðherra í fríi
  • Leiðarljós vinstri manna í efnahagsmálum?
  • Mme. Joly - Nýjasta svindlið?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband