Hefur Guð húmor?

Auglýsing Símans um Síðustu kvöldmáltíðina er í sjálfu sér hvorki merkileg ný neitt sérstaklega fyndin. Hins vegar er hún ekkert móðandi, nema e.t.v fyrir mjög strangtrúaða.

Jón Gnarr sjálfur hittir naglan á höfuðið, því hann tengir trúboðið við nútíman, sem alltof oft vantar hjá okkur sem eldri erum. Okkur skortir skilning á því sem yngri kynslóðin eru að gera, kunna og þekkja. Við þurfum nefnilega að koma til þeirra yngri, á þeirra forsendum og sannfæra þau um að hvert þau eigi að stefna, en ekki búast við það þau sái ljósið sjálf.

Á áttunda áratug síðustu aldar var þáverandi biskup spurður álits á uppfærslu á Jesus Christ Superstar hér á landi og var hann almennt jákvæður, þótt hann tæki ekki undir allt sem þar var sett á svið. Sama mætti núverandi biskup gera, fagna því að sögsvið Biblíunnar sé notað sem vettvangur til að koma skilaboðum áleiðis. Þó ber að forðast ofnoktun, eins og biskup vara við.

Horfum á björtu hliðarnar. Ef Guð skapaði manninn í sinni mynd, hefur hann smáhúmor líka.


mbl.is Biskup segir nýja auglýsingu Símans smekklausa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mér finnst alltaf mjög hæpið þegar kirkjan fer að gagnrýna svona hluti. Ekki get ég á nokkurn hátt séð að það sé verið að gera lítið úr kirkjunni hér. Það sama átti sér stað þegar páskaþátturinn frægi hjá Spaugstofunni var sýndur og endaði það í kæru eins og frægt varð.

Við súpum hveljur þegar íslamstrúarmenn garga yfir skopmyndum af spámanninum sem birtast í erlendum blöðum. Persónulega sé ég engan mun á þessu tvennu.

Grarl (IP-tala skráð) 4.9.2007 kl. 17:11

2 Smámynd: Jónas Egilsson

Við megum neflilega vara okkur á því að vera ekki of fordómafull, leyfum svolítið skopskyn. Það hjálpar til í lífinu.

Jónas Egilsson, 4.9.2007 kl. 17:20

3 identicon

Hvernig geta menn lagst svo lágt .  Sem taka að sér svona hlutverk eingöngu peningana vegna .  Og segja svo . Ég harma það ef ég hef sært einhvern.  Hvar kemur það fram í ritningunni að Júdas hafi ekki mætt á réttum tíma.  Og við síðustu kvöldmáltíðina sátu þeir ekki við borð eða sátu á stólum frá Ikea. Á þeim tímum var setið á gólfinu og maturinn settur á dúk. Eíns og gert er enn víða í Austurlöndum. Það er ekki nóg að segjast vera Kristinn. Maður verður að haga sér þannig. Vertu maður og gefðu tekjurnar af þessu til góðs málefnis. Sig.G. 04.09 07.

Sigurður Guðleifsson (IP-tala skráð) 4.9.2007 kl. 18:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jónas Egils.

Höfundur

Jónas Egilsson
Jónas Egilsson
Höfundur er áhugamaður um mál líðandi stundar og er stjórnmálafræðingur að mennt.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Mávur að nærast á hval.
  • picture 2 861432.png
  • Ráðherra í fríi
  • Leiðarljós vinstri manna í efnahagsmálum?
  • Mme. Joly - Nýjasta svindlið?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 34220

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband